Skilmálar
Elite Wellness ehf. kt. 590724-1730 · Silfurteigur 8, 201 Kópavogur
Sími 860 6060 · info@elitewellness.is
1. Tilboð og kynningar
- Tilboð gilda einungis á meðan birgðir endast.
- Elite Wellness áskilur sér rétt til að ógilda, fresta, breyta eða hætta við tilboð án fyrirvara.
- Breytingar á skilmálum tilboða geta tekið gildi strax og birtast á vefnum.
2. Skilafrestur og endurgreiðsla
- Vörur: Þú átt 14 daga frá afhendingu til að skila vöru. Hún þarf að vera ónotuð, í upprunalegum, órofum umbúðum og með kvittun. Flutningsgjöld eru ekki endurgreidd.
- Sérsniðnar lausnir: Vörur sem eru handblandaðar eða sérpantaðar fyrir tiltekinn viðskiptavin (t.d. einstaklingsbundnir IV-kokteilar) falla ekki undir endurgreiðslurétt.
- Þjónusta: Afbókanir skulu berast minnst 24 klst. fyrir bókaðan tíma; annars er innheimt 30 % af þjónustugjaldi.
3. Greiðslumátar
- Greitt er í gegnum **** með debet- eða kreditkorti.
- Greiðslur fyrir þjónustu er hægt að greiða á staðnum eða við bókun á netinu.
4. Trúnaður og persónuvernd
- Elite Wellness fer með allar persónuupplýsingar í samræmi við persónuverndarlög og GDPR.
- Upplýsingar eru aldrei veittar þriðja aðila nema lög krefjist þess.
- Við notum nafnlaus gögn (t.d. aldur, búsetusvæði) til að sérsníða fræðslupóst og tilboð. Þú getur afskráð þig hvenær sem er.
5. Verð, gjöld og greiðsluskilmálar
- Öll verð eru sýnd með virðisaukaskatti (VSK) nema annað sé skýrt tekið fram.
- Elite Wellness áskilur sér rétt til verðbreytinga og að hætta sölu vöru eða þjónustu án fyrirvara.
6. Afhending vöru
- Pantanir eru afgreiddar innan 1–2 virkra daga.
- Pantanir á Höfuðborgarsvæðinu og suðurlandi taka um 1-2 virka daga
- Aðrar pantanir taka um 2-4 virka daga.
- Hægt er að:
- Sækja í móttöku Elite Wellness.
- Fá sent með Dropp: heim að dyrum eða á næsta Dropp afhendingarstað.
- Skilmálar Dropp gilda um flutning, afhendingu og ábyrgð vöru frá því að hún er afhent flutningsaðila.
7. Ábyrgð og frávik
- Upplýsingar á vefnum eru ætlaðar til fræðslu, ekki sem læknisfræðileg ráðgjöf.
- Viðskiptavinir eru hvattir til að ráðfæra sig við lækni áður en þeir hefja nýtt bætiefnaprógramm eða meðferð ef þeir eru á lyfjum, eru þunguð/á brjósti eða með undirliggjandi sjúkdóma.
- Elite Wellness ber ekki ábyrgð á beinu eða óbeinu tjóni sem rekja má til rangrar notkunar vöru eða þjónustu.
8. Force majeure
- Elite Wellness ber enga ábyrgð ef upp koma óviðráðanlegar aðstæður (t.d. náttúruhamfarir, verkföll, bilun í tölvukerfum) sem hindra réttan rekstur, afhendingu eða þjónustu.
9. Lög og varnarþing
- Skilmálum þessum ber að túlka samkvæmt íslenskum lögum.
- Rísi ágreiningur skal leysa hann fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Hafa samband
Spurningar um skilmála, vörur eða þjónustu: info@elitewellness.is · 860 6060.