Ultrasonic Cavitation meðferð hjá Elite WellnessRF meðferð á læriCavitation haus á kviðLipo laser púðar á læri

Ultrasonic Cavitation

Verð:
Frá 12.800 kr.
30 til 60 mínútur
Mótaðu líkamann með Ultrasonic Cavitation
FDA samþykkt og einstaklega áhrifarík meðferð sem vinnur á þrjóskri fitu sem hreyfing og mataræði ná illa til. Ummálið minnkar, húðin verður sléttari og appelsínuhúð dregst saman. Enginn batatími, og meðferðin hentar líka sem stuðningsmeðferð eftir skurðaðgerðir.

Meðferðin nýtir útvarpstíðni (RF) og lágtíðni ómhljóðsbylgjur (ultrasound) til að vinna markvisst á fitufrumum undir húðinni. Bylgjurnar brjóta fitufrumurnar niður á vökvaform og líkaminn sér síðan sjálfur um að hreinsa þær burt á eðlilegan og náttúrulegan hátt. Fitufrumurnar sem eyðast koma ekki aftur. Samhliða hjálpar meðferðin til við að mýkja vefinn og styðja við fallega endurheimt líkamans.

Við notum 40 kHz ómbylgjur sem vinna á fitulaginu og fjölskauta RF sem hitar dýpri lög húðarinnar. Hitinn örvar kollagenmyndun, sem gerir húðina stinnari og teygjanlegri með tímanum. Meðferðin örvar einnig blóðflæði og slakar á vöðvum.

‍

1 svæði
30 mín: 12.800 kr.
T.d. kviður eða báðir upphandleggir

‍

2 svæði
45 mín: 16.800 kr.
T.d. kviður og mjaðmir

‍

3 svæði
60 mín: 19.800 kr.
T.d. kviður, mjaðmir og læri

‍

Hvað telst eitt svæði?
Kviður
Mjaðmir og hliðar, báðar hliðar
Læri, bæði læri
Upphandleggir, báðir handleggir

Kviður

Vinnur markvisst á þrálátri fitu á kviðnum sem oft situr eftir þrátt fyrir hreyfingu og hollt mataræði, fyrir sléttari og stinnari útlínur.

Mjaðmir og hliðar

Losar um staðbundna fitu á hliðum (svokallaðan björgunarhring) og mótar mittislínuna svo línur líkamans verði mýkri og skarpari.

Læri

Dregur sýnilega úr appelsínuhúð og minnkar ummál á innan- og utanverðum lærum, sem skilur húðina eftir mun sléttari og jafnari.

Upphandleggir

Tekur á þrjóskri fitu á aftanverðum handleggjum, stinnir áferð húðarinnar og gefur handleggjunum fallegri og tónaðri svip.

Hvað felst í tímanum?

Frábær stuðningur eftir skurðaðgerðir

Hjálpar til við að jafna áferð húðarinnar, mýkja svæðið og viðhalda góðum árangri.

Enginn batatími

Þú getur mætt beint aftur í vinnu eða dagleg verkefni strax að meðferð lokinni.

Varanlegur árangur

Fitufrumurnar sem eru brotnar niður vaxa ekki aftur.

Sléttari húð og minna ummál

Línur líkamans verða skarpari og appelsínuhúð minnkar.

Náttúruleg breyting

Árangurinn kemur smám saman í ljós þannig að breytingin verður jöfn og eðlileg.

Örugg og þægileg

FDA samþykkt tækni með lágmarks aukaverkunum.

Hvernig er ferlið?

Bókaðu lausan tíma í Noona eða hafðu samband ef þú þarft aðstoð. Við förum yfir undirbúning og framkvæmd með þér áður en tíminn hefst.

Fyrsti mánuður

Tvö skipti í viku til að koma ferlinu af stað.

Annar mánuður

Eitt skipti í viku til að byggja ofan á árangurinn.

Þriðji mánuður

Eitt skipti aðra hverja viku til að festa árangurinn í sessi.