Heilsumæling – yfirferð niðurstaðna og handskrifaðar athugasemdir

Heilsumæling

Verð:
11.880 kr.
19.800 kr.
19.800 kr.
25 min
Sjáðu hvað líkamann þinn raunverulega vantar af steinefnum og vítamínum á frumustigi.
Mæling, niðurstöður, ráðgjöf og eftirfylgni.
Grunngildi líkamans geta gefið svör við orkuleysi, stirðleika, hárlosi, húð, andoxunar stöðu, uppsöfnun þungmálma, varnarkerfi, hjartavernd, hormóna jafnvægi og margt fleira.
Við sýnum þér hvað líkaminn þinn þarf fyrir frumuheilsu, hvatberavirkni til að fyrirbyggja veikindi og auka orku.

Kjarnamæling

Svört vika: 11.880 kr. (40% afsláttur, fullt verð 19.800 kr.)
Sjáðu hvar líkaminn stendur. Helstu steinefnin, staða C og D vítamíns og heildarstaða þungmálma, ásamt ráðgjöf um hvað skiptir mestu máli að laga fyrst.

‍

Heildarmæling

Svört vika: 19.840 kr. (20% afsláttur, fullt verð 24.800 kr.)
Heildarmynd af líkamanum á frumustigi. Öll steinefni, vítamín A, E, C, D, B6, B9 og B12 og sundurliðun þungmálma, svo þú sjáir nákvæmlega hvaða þungmálmar eru til staðar og getir brugðist markvisst við.

Hvernig mælum við grunn efni

Tæknibúnaður Elite Wellness byggir á mælingum með ljósgreiningu (spectrophotometer). Ljósgreining er nákvæm mæliaðferð sem greinir magn efna út frá því hversu mikið ljós þau draga í sig.

Ljósgreining er notuð á fjölmörgum sviðum vísinda og iðnaðar: í efnafræði, lyfjafræði, umhverfisvísindum, matvælaiðnaði, líffræði og læknisfræði.

Í heilbrigðisgeiranum er aðferðin nýtt til rannsókna á bæði blóði og vefjum.

Raunverulegt ástand á frumustigi

Blóðprufur mæla gildi næringarefna í flutningskerfi líkamans, en þar forgangsraðar líkaminn samvægi í blóði fram yfir birgðastöðu í vefjum og frumum og geta því niðurstöður sýnt eðlileg eða há gildi þrátt fyrir að skortur sé til staðar á frumustigi. Mælingar Elite Wellness byggja á ljósgreiningu sem mælir magn þeirra innan í vefjunum (intracellular), sem gefur mynd af raunverulegu lífefnafræðilegu ástandi líkamans.

Fyrirbyggjandi greining

Þar sem tæknin greinir uppsöfnun og skort í vefjum er mögulegt að sjá merki um ójafnvægi áður en þau koma fram í blóðmælingum eða valda klínískum einkennum. Þetta gerir tæknina að öflugu tæki í fyrirbyggjandi heilsurækt, þar sem hægt er að grípa inn í með markvissum lífsstílsbreytingum eða bætiefnum á frumstigi.

Hröð, örugg og án óþæginda

Tæknin byggir á ljósgreiningu (spectrophotometry), viðurkenndri aðferðafræði í eðlis og efnafræði. Með því að senda ljósgeisla inn í húðina og greina endurkast hans er hægt að mæla magn tiltekinna frumefna út frá einkennandi „fingrafari“ þeirra (optical density). Aðferðin er sársaukalaus og skilar niðurstöðum samstundis.

Hvað felst í tímanum?

Raunveruleg birgðastaða frumna

Mælir „lagerstöðu“ næringarefna inni í frumum og vefjum, ólíkt blóðprufum sem mæla aðeins það sem er í flutningi. Gefur skýrari mynd af næringarástandi líkamans.

Afhjúpar uppsöfnun eiturefna

Greinir þungmálma (s.s. kvikasilfur og ál) sem líkaminn hefur forðað úr blóðrásinni og pakkað inn í vefi. Þessir sjást sjaldnast í hefðbundnum blóðrannsóknum.

Fyrirbyggjandi innsýn

Ójafnvægi greinist oft í vefjum löngu áður en sjúkdómseinkenni koma fram. Gerir þér kleift að grípa inn í strax og leiðrétta skort áður en hann veldur vanda.

Sannreynir upptöku (Bioavailability)

Sýnir hvort fæða og bætiefni séu raunverulega að skila sér inn í frumurnar. Ef upptaka er léleg, sjást bætiefnin ekki í vefjamælingu þótt þau séu tekin inn.

Mat á oxunarálagi

Veitir upplýsingar um oxunarálag (oxidative stress) út frá hlutföllum steinefna. Þetta er lykilmælikvarði á öldrunarhraða frumna og varnarkerfi líkamans.

Án óþæginda og tafar

Engar nálar, blóð eða óþægindi. Mælingin er framkvæmd á yfirborði húðar og á örskömmum tíma liggja niðurstöður fyrir til yfirferðar ásamt ráðgjöf í átt að betri líkama.

Hvernig er ferlið?

Bókaðu lausan tíma í Noona eða hafðu samband ef þú þarft aðstoð. Við förum yfir undirbúning og framkvæmd með þér áður en tíminn hefst.

Skráning

Nauðsynlegar upplýsingar í mælingu er aldur, hæð, þyngd og blóðflokkur. Ekki er þörf á að fasta eða breyta daglegum venjum fyrir komuna

Mæling

Ljósskönnun á fjórum stöðum í lófanum. Húðin er lifandi vefur og er ekki nákvæmlega eins á hverjum millimetra. Þessi aðferð tryggir heildarmynd vefja

Niðurstöður

Yfirferð og aðgerðir fyrir hvaða grunnstoðir líkamanum þínum vantar til að starfa eðlilega.