Skiptakort
No items
Hver er ávinningurinn?
Vöðvastyrkur og þol
Raförvunin virkir bæði yfirborðs- og djúpvöðva sem stuðlar að meiri styrk, úthaldi og betri líkamsbeitingu. Með tækninni er hægt að örva bæði þol- og styrktarþræði vöðvanna, allt eftir markmiðum hvers og eins.
Fitubrennsla og líkamslögun
Eykur orkueyðslu líkamans bæði á og eftir æfingar. Ýtir undir hraðari fitubrennslu og hjálpar við að móta líkamslínu og draga úr fitusöfnun.
Vöðvavirkni
Með raförvunartækni eru allt að 90% vöðva líkamans virkjaðir í einni æfingu sem gerir þjálfunina einstaklega skilvirka. 20-30 mínútna æfing með raförvun skilar vöðvavirkni á við 2-3 klst. Af hefðbundinni styrktarþjálfun.
Endurheimt
Dregur úr spennu, minnkar vöðvaþreytu og vöðvaverki, hjálpar við liðverki og styður við bata eftir álag eða meiðsli. Aukið blóðflæði til vöðvanna eftir æfingar flýtir fyrir endurheimt líkamans til muna.
Örvar sogæðakerfið og blóðflæði
Rafpúlsarnir koma sogæðakerfinu og blóðrásinni af stað sem eykur útskilnað úrgangs og eiturefna í líkamanum, eykur umbrot og bruna líkamans, dregur úr streitu og bólguástandi og veitir meiri og jafnari orku út daginn. Minnkar vökvasöfnun líkamans og stuðlar að betra flæði.
Eykur almenna vellíðan
Örvar blóðflæði, eykur orkustig og stuðlar að betri líðan bæði líkamlega og andlega.
Umsagnir viðskiptavina
Viðskiptavinir okkar lýsa hærra orkustigi og betri svefni eftir næringar greiningu. Þú getur líka hætt að taka vítamín blindandi og fengið þess í stað það sem líkama þínum vantar.
Name Surname
Sævar Helgason
Tryggvi
Gísli Guðmundsson







