Sogæðastígvél

Verð frá:
6.900 kr
30 mínútur

Sogæðastígvél veita djúpt og árangursríkt sogæðanudd með því að nota loftþrýsting sem fer stigvaxandi upp eftir fótunum. Þessi bylgjuvirkni líkir eftir náttúrulegri hreyfingu sogæða- og blóðrásarkerfisins og örvar þannig bæði blóðflæði og sogæðakerfið.

Sogæðanuddið er framkvæmt með öflugum þrýstingsstígvélum sem ná frá iljum og upp að mitti. Meðferðin virkar þannig að loftþrýstingur fyllir hólf stígvélanna í taktfastri röð og myndar djúpt bylgjunudd eða öldurennsli. Þessi hreyfing örvar sogæðakerfið, vekur æðakerfið og þrýstir vökva markvisst upp í átt að hjartanu.

Stígvélin eru mjög árangursrík þegar kemur að því að auka blóðflæði og virka sem öflug forvörn gegn æðasjúkdómum. Meðferðin vinnur ekki einungis á heilsufarslegum þáttum heldur hefur hún sýnileg áhrif á útlit húðarinnar. Með því að vinna á vandamálasvæðum eins og lærum, rassi og maga hjálpar nuddið til við að slétta appelsínuhúð, þétta vefi og minnka ummál.

Þessi meðferð hentar sérstaklega vel fyrir einstaklinga sem glíma við fótapirring, sogæðabólgur og þrálátan bjúg.

Hver er ávinningurinn?

Hraðar endurheimt og mýkir vöðva

Eykur blóðflæði sem skolar burt mjólkursýru og úrgangsefnum eftir æfingar, sem minnkar harðsperrur og flýtir fyrir bata.

Losar um bjúg og vökvasöfnun

Vinnur á uppsöfnuðum vökva í fótum, mjöðmum og kvið sem gefur léttari tilfinningu og minnkar ummál.

Léttir á þreyttum og þungum fótum

Vinnur gegn þyngslum og þreytuverkjum, sérstaklega hjá þeim sem standa eða sitja allan daginn við vinnu.

Eykur blóðflæði og súrefnisupptöku

Bætir hringrás blóðsins niður í tær sem vinnur gegn köldum fótum, dofa og fótapirringi.

Örvar sogæðakerfið og hreinsun

Styður við náttúrulega hreinsun líkamans með því að pumpa úrgangsefnum úr vefjum og draga úr bólgumyndun.

Róar taugakerfið og bætir svefn

Taktfast þrýstingsnudd sem hefur djúpslakandi áhrif, minnkar streitu í líkamanum og stuðlar að betri svefngæðum.

Hvernig er ferlið?

Ljósrófsmæling greinir næringarefnastöðu; sérfræðingar para niðurstöðurnar við markvissar meðferðir og bætiefni. Þannig næst sýnilegur árangur á skemmri tíma.

Sýnilegur árangur

Umsagnir viðskiptavina

Viðskiptavinir okkar lýsa hærra orkustigi og betri svefni eftir næringar greiningu. Þú getur líka hætt að taka vítamín blindandi og fengið þess í stað það sem líkama þínum vantar.

Sed id arcu at tellus ullamcorper porttitor nec at arcu. Quisque vel arcu eros. Phasellus lacus est.

Name Surname

Ómetanlegt að sjá að upptak mín á fæðubótum var ekki að skila sér því mig vantaði steinefni til að styðja við upptökuna

Sævar Helgason

Ég er með slæmt psoriasis og finn mikinn mun á húðinni eftir Halo.

Tryggvi

Ég hélt að ég væri að borða hollt, en greiningin sýndi mér annað. Með einföldum breytingum hef ég sofið betur og líður almennt orkumeiri.

Gísli Guðmundsson

Ég elska LED ljósa meðferðina. Húðin mín fær svo fallegan glóa

Ágústa Natalía

Ég finn lykt í fyrsta skipti í mörg ár! Ég er svo þakklát fyrir Elite Wellness og Halo meðferðina, takk!

Elsa

Næringar greiningin var frábær, ég hætti að taka fjölvítamín og gat farið beint í það sem líkama mínum vantaði

Axel Axelsson